Leeds 3 - 0 Norwich
1-0 Sean Longstaff ('32 )
2-0 Gabriel Gudmundsson ('43 )
3-0 Joel Piroe ('85 )
1-0 Sean Longstaff ('32 )
2-0 Gabriel Gudmundsson ('43 )
3-0 Joel Piroe ('85 )
Leeds United fékk Norwich í heimsókn í 16-liða úrslitum enska bikarsins í dag og skóp þægilegan sigur með varaliðinu sínu, eftir að Daniel Farke þjálfari gerði níu breytingar á byrjunarliðinu á milli leikja.
Lærlingar Farke stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleik og skoraði Sean Longstaff glæsilegt opnunarmark á 32. mínútu eftir undirbúning frá Wilfried Gnonto og Gabriel Gudmundsson. Longstaff gerði mjög vel að taka á móti sendingu í mjaðmarhæð, snúa sér í hálfhring og skora með næstu snertingu án þess að leyfa boltanum að snerta jörðina. Glæsilegt mark.
Bakvörðurinn öflugi Gabriel Gudmundsson, sem lagði fyrsta markið upp, tvöfaldaði forystuna þegar boltinn datt fyrir hann innan vítateigs á 43. mínútu.
Síðari hálfleikurinn var talsvert jafnari og fengu bæði lið færi til að skora en boltinn rataði ekki í netið fyrr en á 85. mínútu, þegar Joël Piroe innsiglaði sigur heimamanna eftir skyndisókn.
Athugasemdir

