Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina sem fékk Parma í heimsókn í dag.
Fyrri hálfleikurinn var mjög bragðdaufur en Fiorentina setti í annan gír í seinni hálfleik en náði ekki að skapa sér almennileg færi á meðan Parma ógnaði lítið sem ekkert.
Fyrri hálfleikurinn var mjög bragðdaufur en Fiorentina setti í annan gír í seinni hálfleik en náði ekki að skapa sér almennileg færi á meðan Parma ógnaði lítið sem ekkert.
Markalaust jafntefli var niðurstaðan. Fiorentina er í 17. sæti með 25 stig, stigi frá fallsæti. Liðið er komið upp úr fallsæti í fyrsta sinn síðan í október. Parma er í 12. sæti með 34 stig.
Hellas Verona vann óvæntan sigur á Bologna þar sem hinn 23 ára gamli Kieron Bowie tryggði liðinu sigurinn. Þetta var fyrsta markið hans fyrir liðið en hann gekk til liðs við félagið frá Hibernian í janúar.
Verona er í 19. sæti með 18 stig, sjö stigum frá öruggu sæti. Bologna er í 8. sæti með 39 stig.
Bologna 1 - 2 Verona
1-0 Jonathan Rowe ('49 )
1-1 Martin Frese ('53 )
1-2 Kieron Bowie ('57 )
Fiorentina 0 - 0 Parma
Athugasemdir



