Það var nóg um að vera hjá Íslendingunum sem léku lystir sínar erlendis í dag.
Dagur Dan Þórhallsson var að ljúka flottum sigurleik með CF Montréal í MLS deildinni rétt í þessu, þar sem kanadíska liðið vann frábæran sigur á útivelli gegn New York City FC.
Dagur lék allan leikinn sem hægri vængbakvörður og urðu lokatölur 0-3 eftir vítaspyrnumark frá Prince-Osei Owusu og tvennu frá Wikelman Carmona.
Matty Longstaff, fyrrum leikmaður Newcastle United, var í byrjunarliði Montréal og léku þeir á móti Emil Forsberg sem var í byrjunarliði New York.
Montréal er með þrjú stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju tímabili í MLS. New York er með sex stig.
Sveinn Aron Guðjohnsen lék þá næstum allan leikinn í sigri Cavese gegn Picerno í C-deildinni á Ítalíu. Sveini Aroni var skipt af velli á 91. mínútu í stöðunni 1-0 og innsiglaði varamaðurinn sem kom inn í hans stað sigurinn skömmu síðar, lokatölur 2-0.
Cavese er um miðja C-deild, þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið og sex stigum frá umspilssæti.
Í danska bikarnum varði Elías Rafn Ólafsson mark FC Midtjylland er liðið tryggði sér sigur í undanúrslitum gegn AGF Århus. Elías varði fjórar af fimm marktilraunum sem rötuðu á rammann.
Lokatölur urðu 1-1 á heimavelli Midtjylland eftir nauman sigur í fyrri leiknum í Árósum. Tómas Óli Kristjánsson var ónotaður varamaður í liði AGF. Midtjylland mætir FC Kaupmannahöfn í úrslitaleik bikarsins.
Logi Tómasson lék þá allan leikinn í vinstri bakvarðarstöðunni hjá Samsunspor sem tapaði naumlega gegn stórveldi Fenerbahce í efstu deild í Tyrklandi.
Samsunspor náði forystunni í tvígang á erfiðum útivelli og lagði Logi seinna mark liðsins upp fyrir Marius, sem skoraði tvennu. Samsunspor leiddi 1-2 í leikhlé en tókst ekki að stöðva dramatíska endurkomu á lokamínútunum.
Marco Asensio lagði upp mörk á 90. og 95. mínútu til að snúa dæminu við og stela sigri fyrir heimamenn í risaveldi Fenerbahce.
Logi og félagar eru án sigurs í síðustu fimm deildarleikjum í röð og sigla lygnan sjó í efri hluta deildarinnar, tíu stigum frá evrópubaráttunni.
Þetta er gríðarlega dýrmætur sigur fyrir Fenerbahce sem er fjórum stigum á eftir Galatasaray í titilbaráttunni.
Í Hollandi sat Willum Þór Willumsson allan leikinn á bekknum í þægilegum sigri NEC Nijmegen sem er í harðri baráttu um meistaradeildarsæti, á meðan Hinrik Harðarson var í byrjunarliðinu í sigri Odd í æfingaleik gegn Inter Turku og Júlíus Mar Júlíusson byrjaði í jafntefli Kristiansund gegn Ranheim.
New York City 0 - 3 Montreal
Cavese 2 - 0 Picerno
Midtjylland 1 - 1 AGF
Fenerbahce 3 - 2 Samsunspor
Nijmegen 3 - 0 Volendam
Odd 1 - 0 Inter Turku
Kristiansund 1 - 1 Ranheim
Athugasemdir

