Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 23:13
Ívan Guðjón Baldursson
UEFA birti færslu um Ídu og Hemma
PEI
Mynd: KSÍ
Ída Marín Hermannsdóttir var í byrjunarliði Íslands sem spilaði við heimsmeistara Spánverja og Evrópumeistara Englands í nýliðnu landsleikjahléi.

Þar fékk hún að máta sig við bestu fótboltakonur heims og öðlaðist gríðarlega mikilvæga reynslu fyrir framtíðina, en hún fékk landsliðskallið eftir frábæra frammistöðu með FH í Bestu deildinni og LSU Tigers í bandaríska háskólaboltanum.

Ída Marín er 23 ára gömul og hefur áður leikið með Fylki og Val í íslenska boltanum.

Hún fetar í fótspor föðurs síns með að leika fyrir íslenska landsliðið, en Hermann Hreiðarsson spilaði 89 keppnisleiki fyrir Íslands hönd á sínum glæsilega ferli sem atvinnumaður í fótbolta. Hermann var mættur á City Ground í gær þar sem Ída spilaði gegn Englandi.

Móðir Ídu, Ragna Lóa Stefánsdóttir, lék á sínum ferli 35 A-landsleiki og skoraði í þeim tvö mörk.

Sérstakur aðgangur UEFA á Instagram, sem var stofnaður fyrir Evrópumótið í fyrra, birti færslu tileinkaða Ídu Marín og Hemma Hreiðars.



Athugasemdir
banner
banner