Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   sun 08. mars 2026 21:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Estupinan réði úrslitum í titilbaráttuslagnum
Þetta er fyrsta markið sem Estupinan skorar fyrir Milan.
Þetta er fyrsta markið sem Estupinan skorar fyrir Milan.
Mynd: EPA
Milan 1 - 0 Inter
1-0 Pervis Estupinan ('35)

Nágrannarnir og erkifjendurnir AC Milan og Inter áttust við í síðasta leik dagsins í Serie A, efstu deild ítalska boltans.

Inter var með tíu stiga forystu á Milan í titilbaráttunni og gat svo gott sem tryggt sér Ítalíumeistaratitilinn með sigri. Milan gaf þeim þó góðan leik og skoraði vængbakvörðurinn Pervis Estupinan á 35. mínútu.

Estupinan, sem var keyptur úr röðum Brighton síðasta sumar, slapp í gegn eftir að Luis Henrique missti einbeitingu í andartak og kláraði með föstu skoti sem Yann Sommer átti ekki möguleika í.

Það var lítið um færi í jöfnum slag og var það Henrikh Mkhitaryan sem fékk besta færi Inter, en skot hans fór beint á Mike Maignan sem gerði sig stóran.

Lærlingar Max Allegri vörðust af krafti og gáfu lítið af færum á sér í seinni hálfleiknum, svo lokatölur urðu 1-0.

Milan er núna sjö stigum á eftir Inter þegar tíu umferðir eru eftir af deildartímabilinu. Hvorugt liðið er með í evrópukeppnum og geta þau því bæði einbeitt sér að titilbaráttunni.

Estupinan fékk að byrja í dag þrátt fyrir að vera vanalega ekki með sæti í byrjunarliðinu hjá Allegri þar sem hinn efnilegi Davide Bartesaghi hefur verið að standa sig mjög vel á tímabilinu.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 32 20 6 6 48 31 +17 66
3 Milan 32 18 9 5 47 27 +20 63
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 32 18 3 11 45 28 +17 57
7 Atalanta 32 14 11 7 44 28 +16 53
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
10 Lazio 32 11 11 10 32 30 +2 44
11 Udinese 32 12 7 13 38 42 -4 43
12 Torino 32 11 6 15 37 54 -17 39
13 Genoa 32 9 9 14 38 45 -7 36
14 Parma 32 8 12 12 23 40 -17 36
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 32 6 9 17 26 47 -21 27
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Verona 32 3 9 20 23 55 -32 18
20 Pisa 32 2 12 18 23 58 -35 18
Slapp
banner
banner
banner