Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: Bold.dk 
Þjálfari FCK hrósaði Rúnari Alex - „Fullkomin frammistaða"
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Rúnar Alex Rúnarsson fékk óvænt tækifæri þegar FCK vann Viborg 2-1 í undanúrslitum danska bikarsins í gær.

Rúnar Alex hefur verið úti í kuldanum en Dominik Kotarski, aðalmarkvörður liðsins, á von á barni og Oscar Buur, varamarkvörður liðsins, er meiddur.

Jacob Neestrup, þjálfari FCK, hrósaði Íslendingnum í hástert.

„Frammistaðan hans var fullkomin. Ég sagði ekki mikið við hann því hann er reynslumikill. Hann kom inn og færði okkur ró og það er mikilvægt," sagði Neestrup.

„Ég er ánægður fyrir hönd Rúnars en það hefur mikla þýðingu að við höfum ekki þurft að nota ungan markmann."
Athugasemdir
banner