David James fyrrum markvörður í ensku úrvalsdeildinni verður heiðursgestur á leik ÍBV og Fram í Eyjum í dag. Eyjamiðillinn Tigull.is greinir frá þessu.
Þetta kemur til þar sem það eru 10 ár síðan þessi 52 ára gamli Englendingur lék með ÍBV í efstu deild. Hann lék 17 leiki með liðinu árið 2013 en þar lék hann undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar fyrrum liðsfélaga síns hjá Portsmouth.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 Fram
James er einn leikjahæsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en hann lék þar 572 leiki. Aðeins Gareth Barry, Ryan Giggs, James Milner og Frank Lampard hafa spilað fleiri leiki.
Það segir í frétt Tiguls að James gæti tekið sér stöðu milli stanganna í dag og leyft fólki að taka skot á sig.
Leikurinn hefst klukkan 16 og er í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net. Goslokahátíð stendur nú yfir í Eyjum en 50 ár eru liðin frá goslokum.



