Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
   lau 08. júlí 2023 19:21
Brynjar Ingi Erluson
Hemmi Hreiðars: Þetta var fyrir Eyjamenn og eyjuna
Hermann Hreiðarsson
Hermann Hreiðarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var hress og kátur eftir 1-0 sigurinn á Fram og skiljanlega en hann segir að strákarnir hafi gert þetta fyrir alla Eyjamenn, bæði nær og fjær.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  0 Fram

Fimmtíu ár eru liðin frá gosinu í Eyjum og fer nú fram Goslokahátíðin en þar koma Eyjamenn saman og skemmta sér hátíðlega.

ÍBV var alltaf líklegt til að skora fleiri mörk en létu eitt duga í dag.

„Við vorum frábærir í þessum leik og það var rosalegur kraftur, orka og baráttuandi sem einkennir Eyjuna fyrst og fremst. Þvílíkur dagur og Goslokahátíð og hérna barðist fólk fyrir lífi sínu nánast, þetta var fyrir Eyjamenn og eyjuna og við endurspegluðum tíðarandann með þessum baráttusigri og góðri spilamennsku. 3-0 eða 4-0 hefði verið sanngjarnt.“

„Sérstaklega þegar vindurinn var farinn að aukast í seinni hálfleik og þurftum við að verjast og gera það vel og berjast fyrir þessum stigum þegar á þurfti en fram að því fengum við öll færin og áttum að fá víti. Við vorum töluvert betri aðilinn. Okkur langaði að gera þetta fyrir eyjuna og Eyjamenn að fagna þessu almennilega með okkur,“
sagði Hermann við Fótbolta.net.

Aðstæður voru góðar og var Hermann sérstaklega ánægður að geta gefið Eyjamönnum sigurinn í dag.

„Það er engin spurning. Það finnst öllum skemmtilegra að spila í góðu veðri og ekki í hífandi roki. Aðstæður voru frábærar og frábær stuðningur, margir á vellinum og orka á eyjunni og við tókum hana og átum hana. Við ætluðum okkur sigurinn í dag og kom ekkert annað til greina,“ sagði Hermann í lokin.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner