Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 08. ágúst 2019 14:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man City að kaupa Pedro Porro - Verður lánaður
Mynd: Getty Images
Mirror, Sky Sports og fleiri fjölmiðlar segja frá því að Manchester City sé að kaupa Pedro Porro frá systurfélagi sínu, Girona.

Pedro er 19 ára gamall og kostar hann City í kringum 11 milljónir punda. Hann leikur sem hægri bakvörður.

Talið er að Porro verði lánaður aftur til Spánar, nánar tiltekið til Real Valladolid.

Hann verður fjórði leikmaðurinn sem City fær í glugganum og þriðji bakvörðurinn. Áður hafði félagið fengið Joao Cancelo frá Juventus, Angelino frá PSG og Rodri frá Atletico Madrid.

Smelltu hér til að sjá öll helstu tíðindin á gluggadeginum

Taktu þátt í umræðunni á Twitter með því að nota #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner