Delap nálgast Man Utd - Rift við Laporte - Arsenal og Liverpool berjast um Huijsen
   sun 08. september 2024 05:55
Sölvi Haraldsson
Ísland í dag - Spennan rafmögnuð í Lengjudeildinni og 2. deildinni
Fjölnismenn mæta Aftureldingu.
Fjölnismenn mæta Aftureldingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Verður svona mikið stuð í klefanum hjá Ólsurum í Þorlákshöfn?
Verður svona mikið stuð í klefanum hjá Ólsurum í Þorlákshöfn?
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
AutoCenter-völlurinn í Breiðholti.
AutoCenter-völlurinn í Breiðholti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður leikið um allt land í íslenska boltanum í dag. Spennan er orðin gífurlega mikil í Lengjudeild karla og 2. deild karla.


Í Lengjudeild karla fara fram 5 leikir. Þetta er næst seinasta umferð deildarinnar. Allir leikirnir byrja klukkan 14:00 en stærsti leikurinn verður spilaður í Grafarvoginum þegar Fjölnismenn fá Aftureldingu í heimsókn í gífurlega mikilvægum leik fyrir bæði lið.

ÍR-ingar eiga heimaleik á AutoCenter-vellinum gegn Gróttu. Grótta þarf sigur til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni á meðan ÍR-ingar geta tekið stórt skref í átt að umspilssæti með sigri. Þórsarar fá Dalvíkinga í heimsókn í norðurlandsslagnum. 

Eyjamenn fá þá Grindavík í heimsókn og Þróttur og Leiknir mætast í Laugardalnum í Reykjavíkurslag.

Spennan í 2. deildinni - Völsungur, Þróttur V. eða Víkingur Ólafsvík?

Spennan er ekkert minni í 2. deildinni þar sem heil umferð fer fram. Stærsti leikur umferðarinnar er án efa Völsungur - Þróttur Vogum. Þróttarar eru á bullandi sigursiglingu og eru í 3. sæti með 38 stig, einu stigi á eftir Völsungi sem er í 2. sæti. 

Víkingur Ólafsvík er með jafn mörg stig og Þróttur Vogum en með slakari markatölu. Ólsarar fara í Þorlákshöfn og mæta Ægi. Ægir eru ekki að keppa upp á neitt þó þeir geta ennþá stærðfræðilega séð fallið en tímabilið er undir hjá Ólsurum í dag. Þeirra helsta vopn fram á við, Gary Martin, verður í banni.

Þá fara einnig fram tveir leikir í 2. deild kvenna. KR fá Hauka í heimsókn og Einherjakonur gera sér ferð í bæinn og mæta ÍH.

sunnudagur 8. september

Lengjudeild karla

14:00 Þróttur R.-Leiknir R. (AVIS völlurinn)

14:00 ÍBV-Grindavík (Hásteinsvöllur)

14:00 ÍR-Grótta (ÍR-völlur)

14:00 Þór-Dalvík/Reynir (VÍS völlurinn)

14:00 Fjölnir-Afturelding (Extra völlurinn)

2. deild karla

14:00 Haukar-KF (BIRTU völlurinn)

14:00 Völsungur-Þróttur V. (PCC völlurinn Húsavík)

14:00 Ægir-Víkingur Ó. (GeoSalmo völlurinn)

14:00 Höttur/Huginn-Reynir S. (Vilhjálmsvöllur)

14:00 KFG-Selfoss (Samsungvöllurinn)

14:00 Kormákur/Hvöt-KFA (Blönduósvöllur)

2. deild kvenna - A úrslit

14:00 KR-Haukar (Meistaravellir)

14:00 ÍH-Einherji (Skessan)


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner