Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. desember 2022 13:00
Elvar Geir Magnússon
Alex Sandro æfir með Brasilíu í dag
Alex Sandro.
Alex Sandro.
Mynd: Getty Images
Alex Sandro, leikmaður Juventus, mun æfa með Brasilíu í dag en hann er eini sérhæfði vinstri bakvörðurinn í hópnum eftir að Alex Telles meiddist fyrr á HM.

Sandro meiddist í riðlakeppninni og missti af leiknum gegn Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum. Liðsfélagi hans Danilo meiddist í þeim leik en hann er leikfær fyrir morgundaginn.

Tite segir að Sandro æfi í dag. Brasilía leikur gegn Króatíu á morgun klukkan 15 í 8-liða úrslitum HM.

„Hann mun æfa síðdegis og svo kemur í ljós hvort hann verði leikfær á morgun," segir Tite, þjálfari Brasilíu.

Eder Militao lék í vinstri bakverðinum gegn Suður-Kóreu en hann er að upplagi miðvörður.

föstudagur 9. desember
15:00 Króatía - Brasilía
19:00 Holland - Argentína

laugardagur 10. desember
15:00 Marokkó - Portúgal
19:00 England - Frakkland
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner