KR-ingar halda í von um Evrópusæti eftir 2-0 sigur gegn ÍBV í dag. Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, segir að allt sé hægt.
Lestu um leikinn: KR 2 - 0 ÍBV
„Við trúum því enn að við getum náð Evrópusæti. Við verðum bara að sjá hvort við náum ekki að gíra okkur í næsta leik, erfiðan leik á Skaganum. Sigur þar færir okkur möguleika. Þetta mót hefði fjarað út í tóm leiðindi fyrir okkur ef við hefðum klúðrað þessu í dag," segir Willum.
Laugardagsleikir hafa ekki virkað í íslenska boltanum og erfitt að fá fólk á völlinn á þessum leiktíma. Áhorfendafjöldinn í Vesturbænum náði ekki 500 í dag. Enski boltinn hafði sitt að segja.
„Maður var að hlusta á útvarpið hér og þar og maður heyrði ekki annað en talað um leik Manchester United og Manchester City. Maður var ekki minntur á að maður ætti leik í dag," segir Willum.























