Miðjumaðurinn Christopher Nkunku hefur hafnað tilboði frá Paris-Saint Germain um nýjan samning.
Þessi 21 árs leikmaður hefur verið orðaður við Arsenal og gæti verið fenginn til að fylla skarð Aaron Ramsey sem er á leið til Juventus.
Þessi 21 árs leikmaður hefur verið orðaður við Arsenal og gæti verið fenginn til að fylla skarð Aaron Ramsey sem er á leið til Juventus.
Nkunku lék undir stjórn Unai Emery hjá PSG á síðasta tímabili en samband hans við núverandi stjóra, Thomas Tuchel, virðist ekki eins og best verður á kosið.
Franski U21-landsliðsmaðurinn er ósáttur með lítinn spiltíma undir Tuchel.
Núverandi samningur hans er til 2020 en hann gæti verið seldur í sumar eftir að hafa hafnað tilboði um nýjan samning.
Arsenal tekur á móti Napoli í kvöld í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir