„Við vorum búnir að leggja þennan leik þannig að við ætluðum að byrja af krafti." sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari HK eftir leik sinna manna gegn Haukum sem fram fór í Kórnum í kvöld. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Lestu um leikinn: HK 1 - 1 Haukar
„Það er óþolandi tími að fá á sig mark svona rétt fyrir háflleik" sagði Jói Kalli.
Umdeilt atvik átti sér stað þegar Birgir Magnús leikmaður Hauka fékk boltann í höndina í sínum eigin teig
„Dómarinn setur flautuna í munninn en hann segir svo að höndin hafi verið í eðlilegri stöðu. Fyrir mér var þetta ekki eðlileg staða varnarmanns."
Nánar er rætt við Jóa Kalla í spilaranum hér fyrir ofan.























