Eins gott að ég fái einhverja geggjaða viðurkenningu fyrir það
„Þetta er bara sjúkt sko, þetta er það sem við viljum taka þátt í og gera. Bara geggjað og geggjuð mæting, ég get ekki kvartað yfir neinu," sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, eftir sigur á Connah's Quay í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 Connah's Quay Nomads
„Það var smá fiðringur í dag, það er langur tími frá því að KA var síðast í Evrópu. Þetta var bara geggjað og nánast fullur völlur."
Grímsi, eins og hann er oftast kallaður, tikkaði í nokkur box í kvöld. Hann var að spila sinn fyrsta Evrópuleik fyrir félagið, skoraði sitt fyrsta mark í Evrópuleik (hafði áður leikið tvo leiki með Víkingi í Evrópukeppni) og lék sinn 300. leik fyrir KA.
„Það er eins gott að ég fái einhverja geggjaða viðurkenningu fyrir það," sagði Grímsi og hló. „Það er bara gaman og gaman að vera partur af þessari sögu sem við erum vonandi að skrifa og bæta í."
Grímsi skoraði fyrra mark KA með hörkuskoti í seinni hálfleik. „Ég á einhverja ömurlega sendingu, ætlaði að senda Pætur í gegn en síðan berst boltinn til mín og ég tek snertingu, boltinn dettur vel fyrir mig þannig ég ákvað bara að hamra honum. Ég vissi um leið og ég var búinn að setja ristina í hann að þetta væri að fara inn. Þetta var bara sjúk tilfinning. Ég á nú nokkur góð en þetta var eitt af þeim bestu."
Leikurinn var ekki eins og hefðbundinn leikur tveggja íslenskra liða. „Þeir eru líkamlega sterkir og flestallir hávaxnir, nema kannski einhverjir tveir á miðjunni. Þeir eru líkamlega sterkari en liðin í íslensku deildinni og leggja upp með að flengja boltanum fram og vera fastir fyrir."
„Við töluðum um það í hálfleik að þeir yrðu þreyttari en við í seinni og það sást á þeim. Þeir pressuðu okkur minna og við fengum stærri svæði. Við áttum sigurinn skilinn."
„Djöfull var ég feginn (þegar Daníel skoraði), það er svo leiðinlegt að vera í leik í lokin með 1-0. Þá kemur eitthvað stress og panikk, það var ljúft að sjá boltann inni, þá vissi maður að þetta var nánast komið," sagði Grímsi.
Grímsi talar um að KA vilji vinna seinni leikinn og að markmiðið sé að halda hreinu. Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Athugasemdir





















