Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 14. apríl 2019 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Eyjólfur Héðins lét snákinn hræða sig
Eyjólfi var brugðið.
Eyjólfi var brugðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karlalið Stjörnunnar er þessa dagana í æfingaferð á Spáni þar sem liðið undirbýr sig af krafti fyrir átökin í Pepsi Max-deildini í sumar.

Menn ná líka að slaka á í sólinni og þegar menn ætla að taka því rólega áhyggjulausir getur verið slæmt að vera með Guðjón Baldvinsson í liðinu.

Guðjón er hrekkjóttur með eindæmum og í gær fékk Eyjólfur Héðinsson að kenna á börgðum hans. Myndbandið að neðan talar sínu máli en Guðjón slakaði eftirlíkingu af snák í átt að honum.

Eyjólfur og "snákurinn"

Strákarnir okkar eru að klára síðustu dagana sína í æfingaferð á Spáni. Þeir unnu Víking Ó. í dag í síðasta æfingaleik vetrarins en eftir leik tók Gaui Bald upp á því að sjá hvort Eyjó Héðins væri ennþá hræddur við snáka og viti menn..... 😱😱😱

Posted by Stjarnan FC on Saturday, April 13, 2019

Athugasemdir
banner