DC United 3-1 Vancouver Whitecaps
1-0 Yamil Asad ('27)
2-0 Paul Arriola ('69)
3-0 Paul Arriola ('80)
3-1 Alphonso Davies ('90)
1-0 Yamil Asad ('27)
2-0 Paul Arriola ('69)
3-0 Paul Arriola ('80)
3-1 Alphonso Davies ('90)
Wayne Rooney lék sinn fyrsta leik í nótt í MLS deildinni í Bandaríkjunum en það var staðfest í lok júní að Rooney væri kominn til DC United.
DC United var að spila á sínum nýja heimavelli í fyrsta skipti í nótt en þeir sigruðu Vancouver Whitecaps nokkuð örugglega á nýja Audi-vellinum.
Rooney byrjaði á bekknum en kom inná í upphafi seinni hálfleiks, hann átti stórann þátt í báðum mörkum DC United í seinni hálfeik.
DC United situr áfram á botni Austurdeildar MLS en nú með 14 stig í 11. sæti, Toronto er næsta lið fyrir ofan með 16 stig.
Athugasemdir