Árni Vilhjálms markaskorari Blika á Valsvellinum í kvöld er sáttur með að vera mættur aftur í græna búninginn.
"Mér líður alltaf vel þegar ég er að spila fótbolta og leið vel í kvöld"
"Mér líður alltaf vel þegar ég er að spila fótbolta og leið vel í kvöld"
Lestu um leikinn: Valur 0 - 3 Breiðablik
Blikar komu sér vel fyrir í baráttunni um 2.sætið í deildinni með sigrinum í kvöld.
"Við vorum auðvitað að vona að Fylkir myndi taka stig af FH en úr því sem komið er ætlum við okkur 2.sætið".
Árni var tekinn útaf þegar hann var búinn að skora 2 mörk, langaði hann ekkert í þrennuna?
"Nei, nei. Ég skoraði tvö mörk og fékk fínan spilatíma" sagði hann sposkur.
Nánar er rætt við Árna í viðtalinu sem fylgir.























