Ejub Purisevic þjálfari Víkings var skiljanlega svekktur með tap sinna manna á heimavelli gegn Keflvíkingum í kvöld!
"Það var ótrúlegt að við næðum ekki að skora annað og þriðja markið, en svo held ég að þeir skori úr fyrsta skotinu sem kemur á markið okkar!"
"Það var ótrúlegt að við næðum ekki að skora annað og þriðja markið, en svo held ég að þeir skori úr fyrsta skotinu sem kemur á markið okkar!"
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 1 - 3 Keflavík
Eftir fyrsta markið kom svo annað högg stuttu seinna þegar Tomasz Luba handlék knöttinn eftir aukaspyrnu og fékk á sig víti þar sem Keflavík skoraði annað markið.
"Svo kemur þetta víti sem ekki er hægt að útskýra. Ég spurði leikmanninn í klefanum og hann vissi það ekki heldur, sennilega bara venjulegur maður undir álagi."
Víkingar eru enn stigalausir og halda næst til Akureyrar að leika við annað stigalaust lið, Þórsara. Ejub er stóískur yfir stöðunni!
"Það er ekkert hægt að gera annað en að mæta á æfingu á morgun og á laugardaginn og reyna að gera betur og fara svo norður"
Frekar er rætt við Ejub í myndbandinu sem fylgir fréttinni.






















