Andy Robertson, bakvörður Liverpool, er efstur á óskalista Atletico Madrid en Lucas Digne, bakvörður Aston Villa, er einnig á óskalista félagsins.
Robertson á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool en hann var einn besti bakvörður heims undir stjórn Jurgen Klopp. Hann átti erfitt uppdráttar á síðasta tímabili og fær samkeppni á næsta tímabili ef hann verður áfram þar sem Milos Kerkez er á leið til Liverpool frá Bournemouth.
Paul Joyce hjá The Times, greinir frá því að Atletico vilji fá Digne frá Aston Villa ef liðið nær ekki að næla í Robertson. Atletico vonast til að ná samkomulagi við Liverpool um að borga 5 milljónir evra fyrir skoska bakvörðinn.
Atletico reyndi einnig við Theo Hernandez, bakvörð AC Milan, en náði ekki samkomulagi við ítalska félagið.
Athugasemdir