Víkingur R. 3 - 2 KR
1-0 Helgi Guðjónsson ('12 , víti)
1-1 Jóhannes Kristinn Bjarnason ('30 , víti)
2-1 Karl Friðleifur Gunnarsson ('43 )
2-2 Matthias Præst Nielsen ('45 )
3-2 Gunnar Vatnhamar ('49 )
Lestu um leikinn
1-0 Helgi Guðjónsson ('12 , víti)
1-1 Jóhannes Kristinn Bjarnason ('30 , víti)
2-1 Karl Friðleifur Gunnarsson ('43 )
2-2 Matthias Præst Nielsen ('45 )
3-2 Gunnar Vatnhamar ('49 )
Lestu um leikinn
Það var mikið fjör þegar Víkingur fékk KR í heimsókn í síðasta leik 11. umferðar Bestu deildarinnar í kvöld.
Víkingur fékk vítaspyrnu snemma leiks þegar Halldór Snær Georgsson braut á Valdimar Þór Ingimundarsyni. Helgi Guðjónsson steig á punktinn og skoraði af öryggi.
KR fékk einnig vítaspyrnu þegar Karal Friðleifur Gunnarsson varði skot frá Gabríel Hrannari Eyjólfssyni með hendi. KR-ingar vildu sjá rautt spjald fara á loft en gult var niðurstaðan. Jóhannes Kristinn Bjarnason skoraði úr vítinu.
Undir lok fyrri hálfleiks opnaðist vörn KR upp á gátt og fyrrnefndur Karl Friðleifur komst einn í gegn og kom Víkingum aftur yfir. Veislunni í fyrri hálfleik var ekki lokið því Matthias Præst jafnaði metin stuttu síðar.
Snemma í seinni hálfleik stangaði Gunnar Vatnhamar boltann í netið eftir hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni og kom Víkingi yfir enn eina ferðina.
Gylfi var nálægt því að bæta við forystuna en skot hans fór í stöngina. Þegar stundafjórðungur var til loka var Eiður Gauti Sæbjörnsson hársbreidd frá því að jafna metin en skot hans rétt yfir markið.
Sigur Víkings þýðir að liðið endurheimtir toppsætið af Blikum. Víkingur er með 23 stig, stigi á undan Breiðabliki en KR er í 9. sæti með 13 stig.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 11 | 7 | 2 | 2 | 22 - 13 | +9 | 23 |
2. Breiðablik | 11 | 7 | 1 | 3 | 19 - 16 | +3 | 22 |
3. Vestri | 11 | 6 | 1 | 4 | 13 - 7 | +6 | 19 |
4. Valur | 11 | 5 | 3 | 3 | 24 - 16 | +8 | 18 |
5. Stjarnan | 11 | 5 | 2 | 4 | 20 - 20 | 0 | 17 |
6. Fram | 11 | 5 | 0 | 6 | 18 - 17 | +1 | 15 |
7. Afturelding | 11 | 4 | 2 | 5 | 12 - 14 | -2 | 14 |
8. ÍBV | 11 | 4 | 2 | 5 | 12 - 17 | -5 | 14 |
9. KR | 11 | 3 | 4 | 4 | 30 - 26 | +4 | 13 |
10. KA | 11 | 3 | 3 | 5 | 10 - 18 | -8 | 12 |
11. FH | 11 | 3 | 2 | 6 | 15 - 16 | -1 | 11 |
12. ÍA | 11 | 3 | 0 | 8 | 13 - 28 | -15 | 9 |
Athugasemdir