
FH 5 - 1 Tindastóll
0-1 Makala Woods ('27 )
1-1 Birna Kristín Björnsdóttir ('47 )
2-1 Ída Marín Hermannsdóttir ('55 )
3-1 Maya Lauren Hansen ('67 )
4-1 María Dögg Jóhannesdóttir ('72 , sjálfsmark)
5-1 Ída Marín Hermannsdóttir ('83 )
Lestu um leikinn
0-1 Makala Woods ('27 )
1-1 Birna Kristín Björnsdóttir ('47 )
2-1 Ída Marín Hermannsdóttir ('55 )
3-1 Maya Lauren Hansen ('67 )
4-1 María Dögg Jóhannesdóttir ('72 , sjálfsmark)
5-1 Ída Marín Hermannsdóttir ('83 )
Lestu um leikinn
FH vann frábæran endurkomusigur gegn Tindastól í Kaplakrika í kvöld.
bæði lið fengu tækifæri til að skora snemma leiks en það voru gestirnir sem náðu forystunni. Makala Woods skoraði á opið markið eftir að Stólarnir settu góða pressu á Söndru Sigurðardóttir í marki FH.
Hún var nálægt því að bæta við öðru marki suttu síðar en Sandra hafði betur í þetta sinn.
FH-ingar sóttu í sig veðrið undir lok fyrri hálfleiks og uppskáru mark strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Birna Kristín Björnsdóttir skoraði eftir að hafa komið inn á sem varamaður í hálfleik.
Ída Marín Hermannsdóttir kom síðan FH yfir stuttu síðar. FH-ingar gengu á lagið og Maya Lauren Hansen bætti þriðja markinu við.
Þær voru ekki hættar en gestirnir voru sjálfum sér verstar þegar María Dögg Jóhannesdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Það var síðan Ída Marín sem innsiglaði sigurinn þegar hún skoraði með frábæru skoti.
FH fer upp fyrir Þrótt í annað sæti deildarinnar með 22 stig en Tindastóll er í 11. sæti með sjö stig.
Besta-deild kvenna
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Breiðablik | 9 | 7 | 1 | 1 | 37 - 7 | +30 | 22 |
2. FH | 9 | 7 | 1 | 1 | 22 - 9 | +13 | 22 |
3. Þróttur R. | 9 | 7 | 1 | 1 | 20 - 7 | +13 | 22 |
4. Þór/KA | 9 | 5 | 0 | 4 | 15 - 15 | 0 | 15 |
5. Fram | 9 | 5 | 0 | 4 | 13 - 18 | -5 | 15 |
6. Stjarnan | 9 | 4 | 0 | 5 | 11 - 19 | -8 | 12 |
7. Valur | 9 | 2 | 3 | 4 | 10 - 13 | -3 | 9 |
8. Víkingur R. | 9 | 2 | 1 | 6 | 15 - 22 | -7 | 7 |
9. Tindastóll | 9 | 2 | 1 | 6 | 11 - 19 | -8 | 7 |
10. FHL | 9 | 0 | 0 | 9 | 3 - 28 | -25 | 0 |
Athugasemdir