Eins og fjallað var um á dögunum, þá líður sóknarmanninum Jhon Duran ekki vel í Sádi-Arabíu.
Duran gekk til liðs við Al-Nassr frá Aston Villa í janúar og hefur skorað tólf mörk í 18 leikjum. Þessi 21 árs gamli sóknarmaður fær mikið borgað en líður ekki vel utan vallar í Sádi-Arabíu.
Duran gekk til liðs við Al-Nassr frá Aston Villa í janúar og hefur skorað tólf mörk í 18 leikjum. Þessi 21 árs gamli sóknarmaður fær mikið borgað en líður ekki vel utan vallar í Sádi-Arabíu.
Duran er spenntur fyrir því að snúa aftur til Englands þar sem hann lék áður með Aston Villa en samkvæmt Teamtalk hafa sex félög áhuga á honum.
West Ham er eitt þessara félaga og eru Fulham og Wolves einnig nefnd. Hin þrjú félögin eru ónefnd.
West Ham reyndi að fá Duran í janúar síðastliðnum og ætlar víst aftur að reyna við hann núna.
Athugasemdir