Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 20:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Walker orðaður við Everton
Mynd: EPA
Kyle Walker, bakvörður Man City, verður ekki áfram hjá liðinu en hann hefur verið orðaður við Fenerbahce frá Tyrklandi.

Walker var á láni hjá AC Milan seinni hluta á síðasta tímabili en það gekk ekki sem skyldi hjá honum þar og félagið ákvað að festa ekki kaup á honum.

Fabrizio Romano greinir frá því að Walker gæti verið áfram í úrvalsdeildinni þar sem Everton hefur sýnt honum áhuga.

Fulham er einnig sagt hafa reynt að fá hann en bakvörðurinn hafi verið of dýr.
Athugasemdir
banner