Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 21:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Delap lagði upp í sigri Chelsea
Enzo Fernandez tryggir Chelsea sigurinn
Enzo Fernandez tryggir Chelsea sigurinn
Mynd: EPA
Chelsea 2 - 0 Los Angeles FC
1-0 Pedro Neto ('34 )
2-0 Enzo Fernandez ('80 )

Chelsea hóf leik á HM félagsliða í kvöld þegar liðið lagði Los Angeles FC.

Pedro Neto kom Chelsea yfir þegar hann plataði Ryan Hollingshead, varnarmann LAFC, upp úr skónum og skoraði með skoti framhjá Hugo Lloris.

Enzo Fernandez bætti öðru markinu við þegar hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Liam Delap sem var að spila sinn fyrsta leik eftir komuna frá Ipswich í sumar.

Liðin eru í D-riðli ásamt Flamengo frá Brasilíu og Esperance frá Túnis en liðin mætast í nótt.
Athugasemdir
banner