Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimir laumaði inn miklu hrósi á Viktor Frey - „Þrjár heimsklassa markvörslur"
Viktor Freyr átti góðan dag í markinu.
Viktor Freyr átti góðan dag í markinu.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Viktor Freyr.
Viktor Freyr.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var þungur á brún eftir enn eitt útivallartap FH í sumar. Hann ræddi við Gunnar Bjart Huginsson hér á Fótbolti.net eftir leikinn.

„Við byrjuðum leikinn ágætlega, en eins og oft í sumar réttum við leikinn upp í hendurnar á Fram. Við vorum betri (en í fyrri) í seinni hálfleik, sýndum smá anda og karakter og héldum áfram. Á endanum var þetta sanngjarnt," sagði Heimir.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  0 FH

„Við reyndum og héldum áfram. Hann átti náttúrulega þrjár heimsklassa markvörslur, svipað og í bikarleiknum sem við spiluðum hérna síðast. Hann var maður leiksins. Við þurfum bara að halda áfram," sagði Heimir.

Viktor Freyr Sigurðsson, sem kom frá Leikni í vetur, lék sinn fyrsta keppnisleik með Fram gegn FH í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins og var örlagavaldur í þeim leik, átti frábæra markvörslu á dýrmætum tímapunkti.

Í kjölfarið fékk hann svo kallið í næsta deildarleik og málin þróuðust þannig að Ólafur Íshólm Ólafsson, sem hafði verið aðalmarkmaður Fram, óskaði eftir því að fá að fara frá félaginu.

Viktor hefur staðið sig vel í markinu eftir að hann fékk traustið. Þetta var í fjórða sinn á tímabilinu, og í annað sinn gegn FH í sumar, sem Fram heldur hreinu.
Heimir: Þá fer þetta að verða eins og umræðan var árið 2022
Athugasemdir
banner
banner