Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gætu þurft að lána Grealish og borga hluta af laununum
Jack Grealish.
Jack Grealish.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Manchester City þarf hugsanlega að lána Jack Grealish í sumar ef ekkert félag er tilbúið að kaupa hann.

Guardian segir að City sé tilbúið að íhuga lán ef það gengur ekki að selja hann en þá þarf félagið líklega að greiða einhvern hluta af launum hans.

Grealish er með um 300 þúsund pund í vikulaun hjá City.

Það er nokkuð ljóst að Grealish á enga framtíð hjá City en hann var skilinn eftir utan hóps fyrir HM félagsliða sem er núna í gangi.

Grealish er dýrasti leikmaður í sögu Manchester City, en félagið keypti hann frá Aston Villa fyrir 100 milljónir punda árið 2021.

Englendingurinn spilaði stóra rullu þegar Man City vann þrennuna fyrir tveimur árum en ekki tekist að láta kné fylgja kviði og mátt þola mikla bekkjarsetu undanfarið.

Everton og Newcastle hafa sýnt honum áhuga og þá hefur einnig verið rætt um mögulega endurkomu til Aston Villa.
Athugasemdir
banner
banner