Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 10:43
Elvar Geir Magnússon
Framtíðarsóknarmaður enska landsliðsins
Mynd: Chelsea
Chelsea gekk nýlega frá kaupum á Liam Delap, 22 ára sóknarmanni sem kemur frá Ipswich. Hann skoraði 12 mörk í 37 úrvalsdeildarleikjum á liðnu tímabili.

Enzo Maresca, stjóri Chelsea, vann áður með Delap hjá unglingaliði Manchester City.

„Ég hef enga efasemdir um að hann verði framtíðarframherji enska landsliðsins. Ég þekki það vel hvað hann getur fært okkur. Hann raðaði inn mörkum fyrir unglingalið City," segir Maresca.

Delap gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Chelsea í kvöld en liðið á leik gegn Los Angeles FC á HM félagsliða.

Athugasemdir