Framtíð Jadon Sancho er í mikilli óvissu en hann var á láni hjá Chelsea frá Man Utd á síðasta tímabili.
Það var kaupskylda í samningnum hans við Chelsea en félagið náði ekki samkomulagi við hann og þurfti því að borga Man Utd sekt.
Það var kaupskylda í samningnum hans við Chelsea en félagið náði ekki samkomulagi við hann og þurfti því að borga Man Utd sekt.
Sancho hefur verið orðaður við fjölmörg lið undanfarið og ítalski fréttamaðurinn Gianluca Di Marzio segir frá því að Napoli hafi áhuga á þessum 25 ára gamla enska vængmanni.
Napoli skoðar einnig möguleikann á að fá Darwin Nunez frá Liverpool.
Ítalska félagið er byrjað að styrkja sig fyrir næsta tímabil en liðið hefur nælt í Kevin de Bruyne á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Man City rann út og varnarmanninn Luca Marianucci frá Empoli
Athugasemdir