Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekkert stress hjá Man Utd varðandi Mbeumo
Bryan Mbeumo.
Bryan Mbeumo.
Mynd: EPA
Simon Stone, blaðamaður hjá breska ríkisútvarpinu, segir Manchester United ekki hafa neinar áhyggjur af stöðu mála varðandi Bryan Mbeumo.

Hann fær allavega ekki þá tilfinningu þegar hann ræðir við fólk í kringum félagið.

Man Utd hefur mikinn áhuga á Mbeumo og á dögunum var sagt frá því að leikmaðurinn vildi helst fara til United.

En svo kom Tottenham inn í myndina eftir að Thomas Frank tók við þar. Spurs hefur mikinn áhuga á því að fá Mbeumo og það voru fréttir um það að leikmaðurinn væri opnari fyrir því að fara þangað eftir að Frank tók við.

Man Utd er hins vegar ekkert að stressa sig á stöðunni og telur félagið sig enn líklegt til að landa Mbeumo.
Athugasemdir
banner