Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Lýsir mjög frumstæðum aðstæðum í Eyjum - Kallar eftir meiri kröfum um umgjörð
Setur spurningarmerki við umgjörðina í gær.
Setur spurningarmerki við umgjörðina í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd af Þórsvelli fyrir mánuði síðan.
Mynd af Þórsvelli fyrir mánuði síðan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Shellmóts stemning. (gömul mynd)
Shellmóts stemning. (gömul mynd)
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
'Hrós á Eyjamenn fyrir það sem þeir hafa þó gert fyrir þennan völl og þetta svæði'
'Hrós á Eyjamenn fyrir það sem þeir hafa þó gert fyrir þennan völl og þetta svæði'
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Aðstæður voru krefjandi og áhugaverðar á Þórsvelli í Vestmannaeyjum í gær, allavega miðað við það sem sást í sjónvarpsútsendingu SÝN frá leiknum. Mikið var búið að spila á vellinum síðustu daga á undan á Pæjumótinu og málaðar línur á völlinn til að skipta honum upp í fleiri minni velli.

Fótbolti.net ræddi við Halldór Árnason, þjálfara Breiðabliks, um aðstæðurnar í Vestmannaeyjum.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  2 Breiðablik


„Þetta var geggjað af því að það var sól og stemning á vellinum, þvílíkt fallegt vallarstæði. Þetta var svolítið eins og að koma aftur á Shellmótið, minnti mig svolítið á KV tímann minn, að spila í 2. deildinni; fólkið sat í brekkunum og alls konar grasvellir. Rosalega mikið um baráttu frekar en eitthvað annað, svona aftur til baka í ræturnar; hlaupa um með félögunum, berjast og hafa gaman."

„Það var mjög sérstakt þegar við löbbuðum úr klefanum okkar af Hásteinsvelli og á völlinn, og svo aftur eftir leik, þá löbbum við í gegnum tjaldstæði, milli tjalda, húsbíla og fellihýsa. Maður var að stíga yfir einnota grill, tjaldhæla og bönd á leiðinni; heilsa fólki í kvöldmatnum sínum. Eins geggjaður og þessi dagur var þá auðvitað setur maður spurningarmerki við, veit ekki hvort það sé ÍTF sem er að reyna selja vörumerkið eða hvað, en þetta eru ekki aðstæður sem eru boðlegar í efstu deild, og ekki heldur í 1. deild. Það voru engar taktískar myndavélar sem dæmi, uppfyllir ekki kröfu leyfiskerfisins."

„Þetta er ekki last á ÍBV, félagið er að gera sitt besta, eru að gera sitt besta með það sem þeir hafa á meðan þeir bíða eftir að gervigrasið verði klárt, ekkert út á þá að setja. En lið hafa þurft að ferðast langan veg til að spila á völlum sem standast kröfur deildarinnar hingað til. Manni finnst þetta sérstakt."

„Rétt fyrir leik og í hálfleik vorum við í öðrum klefa. Fyrir leik gat ég eiginlega ekki talað við strákana því þar var þurrkari og þvottavél sem gestir tjaldstæðisins gátu notað og það var í gangi fyrir leik. Það heyrðist ekkert í mér fyrir leikinn, sem betur fer vorum við, allur hópurinn, gíraður í nákvæmlega þetta, menn voru klárir í hvað sem er. Þetta var mjög frumstætt."


Löngu fyrir leik og eftir leik notast menn við klefann á Hásteinsvelli en skömmu fyrir leik og í hálfleik er gengið í klefana sem eru við Þórsvöll.

„Hrós á Eyjamenn fyrir það sem þeir hafa þó gert fyrir þennan völl og þetta svæði. Ofboðsleg fegurð í kring og þetta var skemmtilegt. En ég held að við verðum að geta gert betur í kröfum um aðbúnað og umgjörð á leikvelli í þessari deild sem við erum alltaf að reyna ýta upp á hærra stig," segir Dóri.
Athugasemdir
banner