Harvey Elliott virðist ekki vera hugsaður í stórt hlutverk hjá Liverpool á næsta tímabili og Tony Cascarino, fyrrum sóknarmaður í ensku úrvalsdeildinni, telur að það sé kominn tími fyrir leikmanninn að leita annað.
Elliott er 22 ára gamall og hefur verið á mála hjá Liverpool frá 2019. Alls hefur hann spilað 147 leiki fyrir félagið og skorað 15 mörk, en hann hefur aldrei náð að koma sér í stórt hlutverk.
Elliott er 22 ára gamall og hefur verið á mála hjá Liverpool frá 2019. Alls hefur hann spilað 147 leiki fyrir félagið og skorað 15 mörk, en hann hefur aldrei náð að koma sér í stórt hlutverk.
Samkvæmt talkSPORT eru nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni með augastað á Elliott og Cascarino, sem er stuðningsmaður Liverpool, telur það best fyrir hann að fara eitthvert annað.
„Ég held að það sé kominn tími fyrir hann að fara frá Liverpool," sagði Cascarino.
„Ég er viss um að hann sé ekki sáttur með stöðu sína hjá Liverpool en núna er tækifæri fyrir hann að eiga frábært mót með U21 landsliði Englands og sýna sig þar."
Athugasemdir