Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 15:00
Elvar Geir Magnússon
Hissa á því að Ange var rekinn
Hugo Lloris leikur í dag fyrir Los Angeles FC.
Hugo Lloris leikur í dag fyrir Los Angeles FC.
Mynd: EPA
Hugo Lloris, fyrrverandi markvörður og fyrirliði Tottenham, segir að það hafi komið sér á óvart að Tottenham hafi ákveðið að reka Ange Postecoglou.

„Já ég var hissa en ekkert í fótboltanum á að koma manni á óvart lengur. Hann á heiður skilinn fyrir það hvað hann afrekaði og við eigum að vera þakklát fyrir það að hann vann Evrópudeildina," segir Lloris.

Thomas Frank, fyrrverandi stjóri Brentford, er tekinn við Tottenham en liðið tapaði 22 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, sem leiddi til þessarar ákvörðunar að skipta um stjóra.

„Ætli það sé betra að enda í efstu fjórum sætum í deildinni án bikars eða vinna bikar og enda neðar? Þetta er spurning sem stjórn félagsins hefur spurt sig," segir Lloris.

„Fyrir hönd Tottenham er ég virkilega ánægður. Félagið náði loksins að vinna bikar og átti það skilið. Vonandi léttir þetta aðeins á hlutunum fyrir framtíðina."
Athugasemdir
banner