Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 23:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pabbi Kerkez: Það er allt klárt hjá okkur
Mynd: EPA
Milos Kerkez, vinstri bakvörður Bournemouth, er á leið til Liverpool en pabbi hans hefur staðfest fregnirnar.

Kerkez kemur til með að leysa Andy Robertson af hólmi sem virðist vera á leið frá félaginu en Atletico Madrid hefur sýnt honum áhuga.

„Liverpool er eina liðið sem kemur til greina hjá okkur, við erum ekki að fara neitt annað og munum ekki tala við önnur félög. Það er allt klárt hjá okkur. Við þurfum bara að ganga frá nokkrum smáatriðum en þetta er í rauninni klárt," sagði pabbi Kerkez.

Liverpool er að styrkja bakvarðarstöðurnar en Jeremie Frimpong gekk til liðs við félagið í síðasta mánuði og hann kemur til með að taka við hægri bakvarðarstöðunni af Trent Alexander-Arnold sem gekk til liðs við Real Madrid á frjálsri sölu.

Bournemouth staðfesti komu franska varnarmannsins Adrien Truffert frá Rennes í dag en hann kemur til með að leysa Kerkez af hólmi.

Athugasemdir
banner
banner