Fyrrum fótboltamaðurinn Gareth Bale er sagður fara fyrir fjárfestingarhópi frá Bandaríkjunum sem stefnir á að kaupa enska fótboltafélagið Plymouth Argyle.
Þetta herma heimildir Telegraph.
Þetta herma heimildir Telegraph.
Bale er ekki með neina tengingu við Plymouth og eru þetta sagðar óvæntar fréttir.
Bandarískir fjárfestingahópar hafa þó verið að vinna með það að fá þekkt andlit til að fjárfesta með sér í félögum í neðri deildum Englands til að bæta ákveðnum glamúr við kaupin.
Þessar fréttir koma eftir að Luka Modric, fyrrum liðsfélagi Bale hjá Real Madrid, var hluti af hóp sem keypti Swansea. Tom Brady var þá hluti af hóp sem keypti Birmingham City og það eru fleiri dæmi.
Er þetta gert til að stækka vörumerkið og er þetta líklega gott fjárfestingartækifæri fyrir Bale.
Plymouth féll í ensku C-deildina á síðasta tímabili. Guðlaugur Victor Pálsson er á meðal leikmanna félagsins.
Athugasemdir