Wolves er búið að ná samkomulagi við Fernando López, 21 árs kantmann Celta Vigo, um samningsmál en á eftir að klára að semja við spænska félagið.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því að félögin séu nálægt því að ná samkomulagi um kaupverð, sem verður norðan við 20 milljónir evra auk árangurstengdra greiðslna.
López var lykilmaður í varaliði Celta Vigo á fyrri hluta tímabils og byrjaði að berjast um sæti í aðalliðinu í desember. Hann spilaði vel með meistaraflokki og skoraði 4 mörk í 20 leikjum.
López á að hjálpa til við að fylla í skarðið sem Matheus Cunha skilur eftir sig með félagaskiptunum til Manchester United.
Athugasemdir