Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   þri 17. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hinn 37 ára gamli Pedro framlengir við Lazio
Mynd: EPA
Hinn 37 ára gamli Pedro Rodriguez verður áfram hjá Lazio á næstu leiktíð en hann hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið.

Pedro hefur verið í herbúðum Lazio frá 2021 en hann hefur komið við sögu í 176 leikjum og skorað 34 mörk. Hann kom við sögu í 30 leikjum í deildinni á síðustu leiktíð en þar af voru aðeins sex í byrjunarliðinu.

Hann hefur átt farsælan feril. Hann er uppalinn hjá Barcelona og spilaði með aðalliðinu frá 2007-2016 áður en hann samdi við Chelsea. Hann spilaði síðan eitt tímabil með Roma áður en hann gekk til liðs við Lazio.

Hann spilaði 65 landsleiki fyrir hönd Spánar og skoraði 17 mörk. Þá var hann heimsmeistari með liðinu árið 2010.
Athugasemdir