Sancho á leið til Ítalíu - Bayern í viðræðum við Chelsea - Arsenal og Man Utd á eftir leikmanni PSG
   sun 17. ágúst 2025 20:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Kærkominn sigur hjá Víkingum sem setja pressu á Val
Óskar Borgþórsson var hetja Víkings
Óskar Borgþórsson var hetja Víkings
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldvin Þór Berndsen sá rautt
Baldvin Þór Berndsen sá rautt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 0 - 1 Víkingur R.
0-1 Óskar Borgþórsson ('49 )
Rautt spjald: Baldvin Þór Berndsen, ÍA ('90)
Lestu um leikinn

Víkingur gat sett pressu á topplið Vals með sigri á ÍA í kvöld en Valur tapaði gegn ÍBV fyrr í dag.

Helgi Guðjónsson komst í gott færi strax í upphafi leiksins en skaut framhjá.

Gabríel Snær Gunnarsson komst framhjá Ingvari Jónssyni þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks og átti skot en Víkingar náðu að bjarga á línu.

Árni Marinó Einarsson varði stórkostlega í tvígang undir lok fyrri hálfleiks og sá til þess að staðan var markalaus þegar flautað var til loka fyrri hálfleiksins.

Strax í upphafi seinni hálfleiks fór Óskar Borgþórsson auðveldlega framhjá Gísla Laxdal Unnarssyni og skoraði með skoti í fjærhornið.

Undir lok leiksins fékk Baldvin Þór Berndsen sitt annað gula spjald og þar með rautt. Víkingur gat gert út um leikinn þegar Valdimar Þór Ingimundarson slapp einn í gegn eftir að Johannes Vall missti boltann við vítateiginn en Árni Marinó sá við honum.

Það kom ekki að sök fyrir Víkinga því þeir fóru með sigur af hólmi. Kærkominn sigur fyrir Víkinga sem höfðu ekki unnið síðustu fimm leiki. Liðið er með 35 stig í 2. sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Vals. ÍA er áfram á botninum með 16 stig.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Valur 19 11 4 4 47 - 28 +19 37
2.    Víkingur R. 19 10 5 4 34 - 24 +10 35
3.    Breiðablik 19 9 5 5 34 - 29 +5 32
4.    Stjarnan 19 9 4 6 36 - 31 +5 31
5.    Vestri 19 8 2 9 20 - 19 +1 26
6.    FH 19 7 4 8 36 - 31 +5 25
7.    Fram 18 7 4 7 28 - 25 +3 25
8.    ÍBV 19 7 3 9 20 - 26 -6 24
9.    KA 19 6 5 8 21 - 35 -14 23
10.    Afturelding 19 5 6 8 24 - 30 -6 21
11.    KR 18 5 5 8 39 - 41 -2 20
12.    ÍA 19 5 1 13 20 - 40 -20 16
Athugasemdir
banner
banner