Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
   þri 18. júlí 2023 22:57
Anton Freyr Jónsson
Rúnar Páll: Öflugur strákur og mjög ánægður með hann
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Mér líður ágætlega. Fannst við vera mjög öflugir í fyrri hálfleik, vorum algjörlega með leikinn. Fyrstu 10 mínúturnar voru kannski á báða boga en komum bara mjög ánægðir inn í hálfleik og vorum að impra á að fá  meiri hlaup bakvið þá og annað slíkt en við stjórnuðum leiknum algjörlega." sagði Rúnar Páll Sigumundsson þjálfarti Fylkis eftir 0-0 jafnteflið við HK í Árbænum í kvöld.  


Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  0 HK

„Við fengum fullt af ágætis upphlaupum, mörg horn og annað slíkt sem við náum ekki að nýta en vorum nálægt því samt og það voru svona móment sem við verðum að nýta því það er erfitt að brjóta HK vörnina aftur. Í seinni hálfleik fannst mér vera svo mikil gæðaleysi, við náðum ekki að spila honum á milli okkar og HK menn komust inn í leikinn og ég er mest svekktur yfir því að halda ekki smá gæðum og standard, síðan vorum við heppnir að HK skyldi ekki skora á síðustu þremur mínútunum, fengu tvö-þrjú mjög góð færi og Óli varði frábærlega og við vorum bara heppnir. Jákvætt sem við tökum með okkur, við héldum hreinu í fyrsta skipti, við spiluðum vörnina svosem ágætlega og höfum gert það í mörgum leikjum reyndar en jújú, bara áfram með þetta, við eigum að geta gert betur."

Það má segja að þessi leikur í kvöld hafi verið leikur tveggja hálfleika en Fylkismenn voru með öll völd í fyrri hálfleik og HK tóku síðan yfir í síðari hálfleiknum.

„Það er bara hárrétt hjá þér. Fínir í fyrri og la la í seinni og ekkert meira um það að segja."

Sveinn Gísli Þorkellsson gékk í raðir Fylkis í dag en hann kemur á láni frá Víking Reykjavík. Hvað er hann að fara gefa liðinu það sem eftir er af mótinu? 

„Þú sást það.Hann spilaði vel í kvöld og er bara öflugur strákur og ég er bara ánægður með hann."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan


Slapp
Athugasemdir
banner
banner