Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals var svekktur með að hafa ekki unnið FH í Pepsi-deildinni í dag.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Kristján Flóki Finnbogason jafnaði leikinn í seinni hálfleik eftir að Kristinn Freyr Sigurðsson hafði komið Val yfir úr víti. Óli segir leikinn hafa verið frábæran.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Kristján Flóki Finnbogason jafnaði leikinn í seinni hálfleik eftir að Kristinn Freyr Sigurðsson hafði komið Val yfir úr víti. Óli segir leikinn hafa verið frábæran.
Lestu um leikinn: FH 1 - 1 Valur
„Við áttum möguleika að vinna hann. Við vorum ofan á stærstan hluta í leiknum."
„Þessi leikur var frábær hjá báðum liðum. Þetta var góður fótbolti, mikið um læti en samt heiðarlegt."
FH hefði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í dag en Óli er feginn að það hafi ekki gengið eftir.
„Ég vildi helst ekki að þeir tæki við titlinum hérna en ég veit þeir verða meistarar. Þó svo að ég hafi gert það nokkrum sinnum og þetta var gaman þá vildi ég það ekki í dag," sagði Ólafur.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.






















