Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 10:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haukar fá sóknarmann frá Blikum
Skoraði fjögur mörk í 12 leikjum með Keflavík í fyrra.
Skoraði fjögur mörk í 12 leikjum með Keflavík í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar eru búnir að fá leikmann frá Breiðabliki.

Sóknarmaðurinn Gabríel Aron Sævarsson er mættur í Hauka sem ætla sér stóra hluti í 2. deild í sumar. Hann er kominn með leikheimild með Hafnarfjarðarliðinu.

Gabríel er Keflvíkingur sem byrjaði síðasta tímabil í Lengjudeidinni mjög vel og samdi svo við Breiðablik þegar leið á sumarið. Í glugganum var hann svo lánaður til ÍR.

Gabríel er fæddur árið 2006 og lék í fyrra sinn fyrsta leik fyrir yngri landsliðin þegar hann kom inn á í vináttuleik gegn Englandi.

Guðjón Pétur Lýðsson tók við Haukum í haust og er hann með þá Óskar Örn Hauksson og Pablo Punyed sér til aðstoðar.
Athugasemdir
banner