Liverpool fór á kostum gegn Galatasaray í gær og vann 4-0 sigur í seinni viðureign liðanna í 16-liða úrslitum.
Nú er ljóst hvaða lið verða í 8-liða úrslitunum og Opta ofurtölvan telur að Arsenal sé klárlega sigurstranglegasta lið keppninnar. Arsenal fær 29,73% sigurlíkur og Bayern München kemur þar á eftir með 18,33%.

Ofurtölvan hefur ekki mikla trú á því að Liverpool standi uppi sem sigurvegari. Liðið fær aðeins 7,12% sigurlíkur. Aðeins Atletico Madrid og Sporting Lissabon eru ólíklegri en Liverpool.
Líkur á að vinna Meistaradeildina:
Arsenal - 29,73%
Bayern Munich - 18,33%
Barcelona - 15,66%
Paris St-Germain - 11,87%
Real Madrid - 9,85%
Liverpool - 7,12%
Atletico - 4,41%
Sporting - 3,03%
Svona verða 8-liða úrslitin:
PSG - Liverpool
Real Madrid - Bayern München
Barcelona - Atletico Madrid
Sporting Lissabon - Arsenal
Fyrri leikirnir verða 7. og 8. apríl og seinni leikirnir verða spilaðir viku síðar.
Athugasemdir