Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 19. júní 2019 21:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Inkasso-kvenna: Sjálfsmark réði úrslitum í sigri ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 1 - 0 Haukar
1-0 Sigurrós Eir Guðmundsdóttir ('38, sjálfsmark)

ÍA hafði betur gegn Haukum þegar liðin mættust upp á Akranesi í Inkasso-deild kvenna í kvöld.

Skagastúlkur komust 1-0 yfir þegar Sigurrós Eir Guðmundsdóttir skoraði sjálfsmark. Markið kom á 38. mínútu og var staðan 1-0 fyrir ÍA í hálfleik.

Haukastúlkur náðu ekki að svara í seinni hálfleiknum og lokatölur því 1-0 fyrir ÍA í þessum leik.

ÍA er enn taplaust í deildinni, með 11 stig eftir fimm leiki. ÍA er í öðru sæti, einu stigi á eftir Þrótti sem er á toppnum. Haukar höfðu unnið tvo leiki í röð fyrir leikinn í kvöld og er liðið með sex stig í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner