Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leeds að fá varnarmann frá Udinese
Mynd: EPA
Leeds hefur náð samkomulagi við Udinese um kaup á varnarmanninum Jaka Bijol.

Enskir og ítalskir fjölmiðlar greina frá þessu en kaupverðið er talið vera um rúmar 20 milljónir evra. Newcastle reyndi að blanda sér í baráttuna en Leeds náði að klára viðskiptin í tæka tíð.

Bijol er 26 ára gamall Slóveni sem hefur verið í herbúðum Udinese frá 2022. Hann gekk til liðs við félagið frá CSKA Moskvu. Hann hefur spilað 95 leiki fyrir ítalska liðið og skorað fimm mörk.

Hann yrði annar leikmaðurinn sem Leeds sækir í sumar á eftir Lukas Nmecha sem gekk til liðs við félagið frá Wolfsburg á frjálsri sölu. Leeds leikur í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa unnið Championship deildina á þeirri síðustu.
Athugasemdir
banner
banner
banner