Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 18:21
Ívan Guðjón Baldursson
Hafnar öllum nema Chelsea
Mynd: EPA
Kantmaðurinn efnilegi Jamie Bynoe-Gittens ætlar að fara til Chelsea. Hann neitar að skoða önnur samningstilboð eftir að hafa gefið munnlegt samþykki fyrir samningi hjá úrvalsdeildarfélaginu.

Chelsea er í viðræðum við Borussia Dortmund um kaup á leikmanninum en þær virðast ganga hægt. Chelsea vildi kaupa leikmanninn fyrir HM félagsliða en mistókst það.

Dortmund er sagt hafa hafnað 42 milljóna punda tilboði í Gittens þar sem félagið heimtar 55 milljónir fyrir hann.

Gittens verður 21 árs gamall í ágúst og kom að 17 mörkum í 48 leikjum með Dortmund á nýliðnu tímabili.

Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum hjá Dortmund.
Athugasemdir
banner
banner