Enski þjálfarinn Gareth Southgate kemur til greina til að taka við stöðu landsliðsþjálfara hjá Póllandi
Pólski miðillinn Przeglad Sportowy Onet segir að Southgate hafi haft samband við pólska sambandið til að lýsa yfir áhuga sínum á að taka við landsliðinu.
Southgate hætti með enska landsliðið eftir Evrópumótið á síðasta ári og verið án starfs síðan.
Á dögunum sagði Michal Probierz upp störfum eftir að Robert Lewandowski, aðalstjarna landsliðsins, lýsti yfir því að hann ætlaði sér ekki að spila með landsliðinu ef þjálfarinn yrði áfram.
Lewandowski var ósáttur með að Probierz hafi tekið af honum fyrirliðabandið en hann mun væntanlega snúa aftur eftir að hafa fengið sínu framgengt.
Athugasemdir