Þýskaland U19 5 - 5 England U19
1-0 Noah Darvich ('7)
2-0 Said El Mala ('31)
2-1 Joshua King ('35)
3-1 Max Moerstedt ('42)
4-1 Leopold Wurm ('44)
5-1 Said El Mala ('48)
5-2 Ethan Wheatley ('52)
5-3 Reiss-Alexander Russel-Denny ('55)
5-4 Zach Abbott ('61)
5-5 Jesse Derry ('63)
1-0 Noah Darvich ('7)
2-0 Said El Mala ('31)
2-1 Joshua King ('35)
3-1 Max Moerstedt ('42)
4-1 Leopold Wurm ('44)
5-1 Said El Mala ('48)
5-2 Ethan Wheatley ('52)
5-3 Reiss-Alexander Russel-Denny ('55)
5-4 Zach Abbott ('61)
5-5 Jesse Derry ('63)
Sögulegum leik var að ljúka á EM U19 ára landsliða þar sem Þýskaland og England mættust í annari umferð riðlakeppninnar.
Þjóðverjar völtuðu yfir Englendinga í fyrri hálfleik og leiddu 5-1 í upphafi síðari hálfleiks, en Englendingar voru fljótir að svara fyrir sig.
Þeir skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla til að jafna og fengu svo bæði lið færi til að sigra leikinn en tókst ekki.
Lokatölur eru því 5-5 sem er nýtt met fyrir mörk skoruð í einum leik á EM U19 ára landsliða.
England er með tvö stig eftir tvær umferðir og Þjóðverjar eiga aðeins eitt stig. Lokaumferðin verður því gríðarlega spennandi, en Holland er búið að sigra riðilinn og eru frændur okkar frá Noregi með stórveldunum í baráttunni um annað sætið.
U19 ára landslið Íslands spilaði æfingaleik við England fyrr í júní og tapaði 3-1.
Athugasemdir