Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 14:07
Elvar Geir Magnússon
Heimild: RÚV 
„Tæklaðu þessa helvítis tussu“
Kvenaboltinn
Frá Vestmannaeyjum.
Frá Vestmannaeyjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mótsstjórn ÍBV bárust nokkrar tilkynningar um óviðeigandi hegðun foreldra á TM-móti hjá 5. flokki stúlkna í Vestmannaeyjum um síðustu helgi.

RÚV fjallar um málið og segir að ljótt orðbragð á borð við „tæklaðu þessa helvítis tussu“ hafi heyrst í hita leiksins.

Segir að stúlkurnar hafi margar verið með tárin í augunum og niðurbrotnar eftir leik vegna þeirra orða sem voru látin falla.

„Það vill enginn sjá þessa framkomu, hvort sem það er á þessum opnu mótum sem félögin eru að halda eða Íslandsmótum eða bikarkeppni. Við viljum ekki sjá svona framkomu foreldra gagnvart ungum iðkendum," segir Sigríður Inga Kristmannsdóttir, mótsstjóri.

Athugasemdir