Luis Enrique, stjóri PSG, og Fernando Llorente, leikmaður Atletico Madrid, lýstu yfir áhyggjum sínum vegna veðurfarsins á HM félagsliða eftir leik liðanna á dögunum.
PSG vann öruggan 4-0 sigur gegn Atletico á sunnudaginn í svakalegum hita.
Leikurinn fór fram í hádeginu á staðartíma í Los Angeles í Bandaríkjunum en sá tími var valinn svo það væri hentugt fyrir Evrópubúa að horfa á leikinn.
Það var hins vegar tæplega 40 stiga hiti og mikill raki sem gerði leikmönnum erfitt fyrir.
„Hitastigið hafði augljóslega áhrif á leikinn. Tímasetningin var frábær fyrir evrópska áhorfendur en liðin eru að þjást. Það er ómögulegt að spila á fullu í 90 mínútur," sagði Enrique.
„Það er ómögulegt að spila við svona, á þessum tíma, í þessum hita. Það er hræðilega heitt. Mér var illt í tánöglunum, ég gat varla hlaupið, þetta er ótrúlegt. Þetta er eins fyrir alla svo það er engin afsökun," sagði Llorente.
Athugasemdir