Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
banner
   mið 18. júní 2025 12:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jón Daði mest orðaður við tvö félög
Í leik með Selfossi á sínu tíma.
Í leik með Selfossi á sínu tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Daði og Kolbeinn Sigþórsson mynduðu frábært tvíeyki í íslenska landsliðinu.
Jón Daði og Kolbeinn Sigþórsson mynduðu frábært tvíeyki í íslenska landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var greint frá því að Jón Daði Böðvarsson yrði ekki áfram hjá Burton á Englandi og væri á leið til Íslands.

Þau félög sem hvað mest er slúðrað um þennan daginn eru uppeldisfélagið Selfoss og Víkingur.

Hann var síðasta haust sterklega orðaður við Stjörnuna en er samkvæmt heimildum Fótbolta.net ekki á leið þangað.

Selfoss er í 11. sæti Lengjudeildarinnar, liðið er nýliði í deildinni og veitt svo sannarlega ekki af aðstoð Jóns Daða í baráttunni í næstefstu deild. Hann lék síðast með liðinu sumarið 2012 og hefur verið í atvinnumennsku síðan.

Víkingur er á toppi Bestu deildarinnar og er á leið í forkeppni Sambandsdeildarinnar í næsta mánuði. Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, hefur talað mjög vel um Jón Daða en þeir voru liðsfélagar í landsliðinu, og var hann orðaður við félagið síðasta sumar.

Jón Daði, sem er 33 ára framherji, hefur einnig verið orðaður við KR og Fram. Hann lék sem atvinnumaður í Noregi, Þýskalandi og á Englandi. Hann á að baki 64 landsleiki og skoraði í þeim fjögur mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner